Nú er það hart undir tönn

Sykurfallið þegar líða tekur á morguninn, að ekki sé talað undir síðdegið getur verið ansi hátt í líkama hins venjulega vinnumanns. Þá er eins gott að hafa eitthvað innan seilingar sem getur lagað orkubúskapinn, ellegar er næsta víst að eftirtektin og ákefðin séu á veg allrar veraldar og komi ekki aftur til meðvitundar fyrr en daginn eftir. Einfalt ráð er þetta: Skerið niður hina heilögu þrenningu heima í eldhúsinu kvöldinu áður; rófu, gulrót, blómkál, allt saman í hæfilega munnbita og komið svo fyrir í litla vinalega nestisboxinu. Þegar millsvengdin sverfur að er ekkert dásamlega en að þurfa að hafa fyrir seðjunni, tyggja gaumgæfilega þetta hreina og yndislega bragð sem fæst úr hreinni og beinni matvöru - ogh viti menn; allt springur það fram á tungunni. Naslið þarf nefnilega að vera hollt, en helst af öllu einfalt ...