Það er mikilvægt að slá á svengdina sem læðist að manni upp úr miðjum degi – og þá er eins gott að hafa eitthvað hollt við hendina, laust við óþarfa sykur og einhver aukaefni. Hér kemur upplagt ráð sem er bæði ódýrt og gott. Mundu eftir grænkálinu og rauðrófunni í næstu búðarferð, jafnvel góðri ólífuolíu og sjávarsalti ef þú átt það ekki heima – og komdu þér svo fyrir framan við eldhúsbekkinn þegar heim er komið: Taktu fram bökunarpappír, eða gamla góða smjörpappírinn eins og hann var vanalega kallaður í gamla daga – og legðu á ofnplötuna, skerðu grænkálið nokkuð smátt niður, en rauðrófunua í sneiðar með flysjara, stráðu hæfilegu magni af sjávarsalti yfir og dassi af ólífuolíu og skelltu inn í ofninn. Best er að elda þetta í 45 mínútur við vægan hita.
Nú er það bomban græna
Fleiri fréttir
Nýjast