Ef Íslendingar væri ennþá sæmilega konungshollir og hallir undir siðareglur rojalismans myndu þeir fyrir margt löngu vera búnir að aðla herra Gunnar Þórðarson, eftirlætisson Hólmavíkur og helsta ungling Keflavíkur. Meira en 700 lög kappans hafa verið hljóðrituð á farsælum ferli hans og mörg þeirra eru svo rækilega greypt í huga landsmanna að þau eru fyrir margt löngu orðin partur af sjálfsmynd þeirra. Nýi þriggja diska safnpakkinn með lögum Gunna er því jafn mikil þjóðareign og hún er skyldueign.
Nú er það allur gunnar
Fleiri fréttir
Nýjast