Nú er fókusinn á konur

Konum í íslenskri myndlist er aldrei gert nógu hátt undir höfði, en vel að merkja; í hópi þeirra eru án nokkurs efa margir hæfileikaríkustu, listfengustu  og merkustu myndlistarmenn sögunnar hér á landi, allt frá Kristínu Jóns til Kristínar Gunnlaugs. Því er á þetta minnst að nú stendur yfir afar vel heppnuð sýning á verkum helstu kvenskörunga íslenskrar myndlistar í víðáttumiklum og fallegum salarkynnum Listasafns Íslands við Fríkirkjuveg (gengið inn frá Skálholtsstíg að baki kirkjunnar). Sýningin ber heitið Konur stíga fram – svipmyndir 30 kvenna í íslenskri myndlist – og hér stíga þær svo sannarlega fram í öllu sínu veldi og hefðu vel mátt gera fyrr í sölum Listasafnsins. Ekki sakar að gefa sér góðan tíma og fá sér svo latte í lokin á teríunni góðu í gamla Glaumbæ.


Nánar um sýninguna má finna hér: