Norðurljósaþorp rís á mýrum

Það verður ekki ónýtt á næstu árum að liggja undir glerkúpli og njóta norðurljósanna í næturmyrkrinu á nýju og harla nýstárlegu hóteli vestur á Mýrum, en framkvæmdir við það eru í burðarliðnum.

Í fyrsta áfanga þessa gististaðar er gert ráð fyrir allt að hundrað 30 fermetra stökum smáhýsum með glerkúlu í stað hefðbundins þaks og veggja, en fyrir vikið munu gestir hans geta baðað sig í ljósum himinsins og alls þess annars sem festingin yfir Íslandi hefur upp á að bjóða í veðrum sínum og birtuskilyrðum.

Norðurljósaþorpið mun rísa í landi Skíðsholts á Mýrum og er gert ráð fyrir smáhýsin geti orðið allt að 300 á staðnum, svo fremi viðtökur ferðamanna verði góðar, en í því efni eru aðstandendur verkefnisins hvergi bangnir og telja þvert á móti að þyrpingin verði aldeilis einstök í ferðaþjónustu hér á landi og ómissandi þáttur í upplifun túristans af landi elds og ísa, ekki ósvipað og Bláa lónið og aðrir álíka manngerðir seglar hafa reynst á síðusstu árum.

Ítarlega er fjallað um verkefnið í lífsstílsþættinum Ferðalaginu sem frumsýndur var á Hringbraut í gærkvöld, en hann er nú hægt að sjá hér á vef stöðvarinnar.