Njótum mótunarára errós

Mótunarár Errós frá 1955 til 1964 eru umfjöllunarefni sýningarinnar Tilurð Errós sem verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, laugardaginn 31. október kl. 16. Við sama tækifæri verður opnuð sýningin, Við erum ekki hrædd, á verkum eftir Úlf Karlsson í sýningaröð sem kennd er við D-sal Hafnarhúss. Hér mætast verk tveggja listamanna sem báðir hafa fundið hugmyndum sínum meginfarveg í málverki þó allt að sextíu ár skilji að elstu og yngstu verkin.

Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, opnar sýningarnar að listamönnunum viðstöddum. Við opnun sýningarinnar verður veitt viðurkenningu úr Listasjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur sem Erró stofnaði til minningar um Guðmundu frænku sína. Sjóðnum er ætlað að efla og styrkja listsköpun kvenna.