Það getur verið í meira lagi við hæfi að breyta hressilega um umhverfi á skömmum dögum Mörsugar á Íslandi - og því þá ekki að skella sér austur fyrir fjall á smekklegt hótel sem státar af öllu sem við á að eta; dásamlegri afþreyingu, yndislegu umhverfi, að ógleymdum mat og drykk sem er á pari við það besta sem þekkist á íslenskum veitingahúsum. Hér er verið að tala um Hótel Selfoss sem er glæsileg vin í undirlendi Suðurlands þar sem stutt er í margar helstu náttaúruparadísir Íslands, svo og mörg fegurstu þorpin á borð við Eyrarbakka og Stokkseyri. Sjálft hótelið hefur nú verið tekið í gegn - og á það jafnt við um innviði og þjónustu - en gullmolarnir eru margir og er þar á engan hallað þótt Riverside Spa sé nefnt þar fyrst af öllu, en velheppnaðri sælureit er vart að finna hér á landi. Hótel Selfoss, sem alltof margir keyra framhjá án umhugsunar, hefur fengið prýðisgóða andlitsupplyftingu - og það er sannarlega hægt að mæla með rómantískri helgi á bakka Ölfusár, mesta vatnsfalls landsins ...
Njótið alvöru atlætis á hótel selfossi
Fleiri fréttir
Nýjast