Farðu í mekka poppsins

Það er engin ástæða til að gera lítið úr hitasprungnum maís sem getur auðvitað verið yndisleg fæða á köldum laugardagskvöldum þegar hjónakornin hjúfra sig uppi í sóffa (með tveimur effum af því að það er helgi) og litlu börnin eru kannski farin að sofa. Þá er eiginlega ekkert fullkomnara en að kveikja á góðri bíómynd, vera með drykkinn tilbúinn á borðendanum og barmafulla skál af poppi í fanginu. Það er allt í lagi að sukka svolítið um helgar til að verðlauna sig eftir alla hollustu og hreyfingu vikunnar sem er að líða – og þá er ekkert betra en poppið úr sjoppunni á Grundarstíg, þessari á horninu við Skálholtsstíg.