Skyndibitinn getur verið varhugaverður, enda kallar svangur maginn á fljótasta fixið. Ekki detta í sælgætið á hvaða degi sem er, sýnið frekar fyrirhyggju og kaupið ykkur góðan slatta af hnetum og fræjum úti í næstu lágvöruverðsbúð og skiptið í litla skammta sem þið komið fyrir í nestispokum. Takið með ykkur í vinnuna; handfylli af hnetum er upplagður skyndibiti, uppfullur af góðri fitu og eitthvert besta próteinið sem líkaminn þarf til að efla athygli. Í nýjum leiðbeiningum Landlæknis fá hnetur í góðu hófi fullt hús stiga.
Með handfylli af hnetum
Fleiri fréttir
Nýjast