Nasistaball á borginni

Ljóðskáldið og bókasafnarinn Valdimar Tómasson, þekktari sem Ljóða-Valdi, er fastur gestur í síðdegisþætti Tóta á Hringbraut FM 89.1. Valdi er hafsjór af þjóðlegum fróðleik og í raun mennskur ljóðaglymskratti, svokallaður Ljóðskratti, og hann getur dælt út úr sér ódaulegum ljóðum okkar helstu skálda síðustu tvær og hálfa öldina eða svo.

Valdi mætti á dögunum í hljóðver með Morgunblaðið síðan í september 1937 undir hendinni og las vel valda kafla upp úr blaðinu. Athygli vakti að forsíða blaðsins var í þá daga þakin auglýsingum þannig að ekki þurftu Moggablaðamenn liðinna tíma að hafa þungar áhyggjur af því að tromma upp með spennandi fréttir á frontinum.

Skemmtilegasti forsíðumoli blaðsins var óneitanlega auglýsing um dansleik Fjelags ungra þjóðernissinna á Hótel Borg en auglýsingin var skreytt hressilegum hakakrossi. Félagsskapur þessi heyrir vitaskuld sögunni til en stemningin í samfélaginu er nú einu sinni þannig þessi misserin að slík auglýsing gæti allt eins birst í dag og ef til vill styttist í að íslenskir þjóðernissinnar stígi dansinn á ný á Borginni þótt hljómsveit Mr. Cook muni tæpast sjá um undirleikinn.

Hlusta á útvarp Hringbraut