KEX Hostel heldur hina árlegu íslensku bjórhátíð í fjórða sinn dagana 24. til 27. febrúar. Hátíðin er haldin í tilefni af 27 ára afmælisdegi íslenska bjórsins, en þann 1. mars árið 1989 var almenn sala á bjór leyfð eftir 74 ára sölubann. KEX Hostel hefur boðið íslenskum og erlendum bruggurum í heimsókn til að kynna sig og sína framleiðslu dagana sem hátíðin fer fram. Öll helstu brugghús landsins taka þátt í hátíðarhöldunum og munu bruggarar frá Borg, Ölgerðinni, Einstök, Vífilfelli, Bryggjan Brugghús, Segul 67, Steðja, Ölvisholti og Kalda kynna starfsemi sína á KEX Hostel. Erlendu bruggarnir koma frá örbrugghúsum í Danmörku (To Øl, Mikkeller og Alefarm) og Bandaríkjunum (The Commons Brewery, Pfriem Family Brewers og Surly Brewing Company) og sérhæfa sig í framleiðslu á hágæða handverksbjór (e. craft beer) af ýmsum toga. Á hátíðinni í ár bætast við þrjár nýjar staðsetningar og eru það annars vegar Mikkeller & Friends Reykjavík og veitingastaðurin við Hverfisgötu 12 og hinsvegar Fiskislóð 73. Á Mikkeller & Friends Reykjavík hefst dagskráin Bjórvikunni mánudaginn 22. febrúar þar sem bjórar frá Upright í Oregon yfirtaka dælurnar. Sænska veitingahúsið Omnipollo‘s Hatt mun taka yfir eldhúsið á Hverfisgötu 12 miðvikudaginn 24. Febrúar. Omnipollo‘s hatt er veitingahús í sænsku handverksbruggarana frá Omnipollo. Bjórar frá Omnipollo munu yfirtaka dælurnar á Hverfisgötu 12 og Mikkeller & Friends sama dag. Á Fiskislóð 73 verður svo boðið uppá svokallað ofur-session, pop up veitingahús og bari og rokktónleika. Getur þetta klikkað? Nei, varla ...
Næst á dagskrá, íslensk bjórhátíð
Fleiri fréttir
Nýjast