Lífið er í listagilinu

Óvíða er meiri þróttur í listalífi landsmanna og í Listagilinu á Akureyri þar sem gömlum og miklum verksmiðjuhúsum frá gullöld Sambandsins hefur verið breytt í iðandi listasali af því tagi sem allir munu heillast af. Nú stendur yfir fjórða opnun samstarfsins Salt Vatn Skæri og að þessu sinni kynna Freyja og Hekla gjörning sinn Silkisalur, pappírsborð fyrir gestum og gangandi. Gjörningurinn hefst formlega mánudaginn 16. mars og lýkur föstudaginn þann 20. Alla dagana gefst áhugasömum kostur á að heimsækja Silkisal, pappírsborð og fylgjast með þróun og sköpun gjörningsins og persóna hans: Sivonigaba og Tokkólu Mírus.