Eftirtektarverðasta myndlistarsýningin nú um stundir er höggmyndasýning Kristins E. Hrafnssonar í Bogasal Þjóðminjasafnsins. Sýninguna kallar hann Á veglausu hafi og er þar komið réttnefni, því áttir, jafnt höfuðáttir sem aðrar, eru megin umfjöllunarefni hennar. Djúp íhygli einkennir verk Kristins eins og oft áður en um leið einhver uppljómaður einfaldleiki eins og oft einkennir þá list sem situr lengst í hverjum manni. Hér er lesið í veður og áttir, ólík tungl og tól - og eftir situr áhorfandinn nokkuð hugsi um stað sinn og stund.
Náðu áttum með kristni e.
Fleiri fréttir
Nýjast