Mynd dagsins, eða myndir dagsins, eru að þessu sinni af Daða Frey á leið sinni að skoða gosið í Geldingadölum. Daði lagði leið sína að gosinu í dag eins og svo margir aðrir. Hann hefur greinilega náð að bílastæðinu og gönguleiðinni áður en lögreglan lokaði fyrir umferð að svæðinu.
Gosið í Geldingadölum er einmitt í nýju myndbandi Daða Freys og Gagnamagnsins sem frumsýnt var í vikunni. Þar reyndar er rætt um Eyjafjallajökul en eins og allir landsmenn vita þá er myndin sem sýnd er af gosinu af eldgosinu sem nú stendur í Geldingadölum. Myndbandið má sjá hér að neðan.