Gosstöðvunum lokað vegna álags: Bílaröðin margra kílómetra löng

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að loka tímabundið gosstöðvunum í Geldingadölum vegna mikils álags á svæðinu. Mikill fjöldi er á leið að eldgosinu. Því hefur verið tekin ákvörðun um að loka og segir í tilkynningu lögreglunnar að óvíst sé hvort að það verði opnað aftur í dag.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að svæðið verði ekki rýmt en að það komist ekki fleiri að í samtali við Fréttablaðið. Hann sagði röðina ná langt inn á Grindavíkurveg.

ÁRÍÐANDI! Mikið álag er núna vegna mikils fjölda á leið á gossvæðið. Tekin hefur verið ákvörðun að loka tímabundið. Óvíst að svæðið verði opnað í dag.

Posted by Lögreglan á Suðurnesjum on Tuesday, 30 March 2021

Fleiri fréttir