Fyrir 49 árum síðan sendi Disney frá sér hina fyrir löngu sígildu teiknimynd The Jungle Book, eða Skógarlíf, þar sem ævintýri skógardrengsins Mógla lifnuðu við og samskiptum hans við skógardýrin, góð og slæm, hafa allar götur síðan skemmt krökkum um víða veröld. Og sennilega þekkjum við flest þessa sögu Kiplings best af kynnum við þessa mynd.
Það liggur því við að það sé óþarfi að rekja söguþráðinn en í stuttu máli finnur skuggapardusinn Bagheera yfirgefið kornabarn í skóginum. Hann áttar sig strax á því að barnið á ekki séns á því að lifa í skóginum nema það tilheyri hópi og kemur krúttinu því í fóstur hjá úlfahjörð.
Þar elst Mógli síðan upp í góðu yfirlæti og reynir eftir fremsta megni að temja sér hætti og siði úlfa. Þessi notalega tilvera hans kemst í uppnám þegar tígurinn ógurlegi Shere Khan mætir á svæðið, harðákveðinn í því að kála mannhvolpinum, enda nokkuð viss um að hann verði skeinuhættur þegar hann vex úr grasi og verður að manni.
Bagheera ákveður því að fylgja drengnum í öryggið í þorpi mannanna. Hætturnar á leiðinni eru margar. Kyrkislangan Kaa er til dæmis alveg til í að gleypa drenginn, Shere Kahn er á hælum hans og apakóngurinn Louie á sitthvað vantalað við þennan tvífætta frænda sinn.
Illu heilli verða þeir Mógli og Bagheera viðskila en þá dúkkar upp, slæpinginn kærulausi, björninn Balloo. Með honum og Mógla tekst strax mikil vinátta og þeir ætla sér að hengslast í skóginum saman. En tígurinn nær skottið á þeim og magnað uppgjör er óumflýjanlegt.
Teiknimyndin er ennþá frábær skemmtun en nú hefur Disney gefið sögunni um Mógla nýtt líf í þessari áferðafallegu mynd þar sem Mógli ungur drengur, Neel Sethi, leikur Mógla á móti tölvugerðum, talandi dýrum sem eru ótrúlega raunveruleg.
Bill Murray fer á sínum alkunnu kostum þar sem hann leggur Ballo til rödd sína en annars eru allir raddleikararnir alveg frábærir. Scarlett Johansson er seiðandi og banvæn Kaa og Ben Kingsley traustur Bagheera. Sjálfum hefur mér alltaf þótt Bagheera flottasta persónan í teiknimyndinni og hann er ferlega töff í tölvugerðinni, biksvartur og tignarlegur. Traustur sem klettur.
En rétt eins og fyrir hálfri öld er það tígurinn Shere Kahn sem stelur senunni. Öndvegisleikarinn George Sanders talaði fyrir tígurinn í gamla daga, og gaf villidýrinu virðulegan en háskalegan þokka. Að þessu sinni kemur það í hlut Idris Elba að túlka Shere Kahn og hann gerir það með slíkum tilþrifum að ógnin og illskan sem af dýrinu stafar verður áþreifanleg. Shere Kahn á tjaldið í hvert skipti sem hann birtist. Við erum að tala um stórleik hérna.
Síðan er óhjákvæmilegt að nefna meistara Christopher Walken sem nýtur sín í botn í hlutverki apakóngsins og brestur meðal annars í söng eins og honum einum er lagið.
Leikarinn Jon Favreau hefur fyrir löngu sýnt og sannað að hann er flinkur leikstjóri, til dæmis með hinni frábæru Iron Man sem markaði upphafið af óslitinni sigurgöngu Marvel-myndasöguhetjanna í bíó. Hann hefur alla þræði í hendi sér í The Jungle Book og slær hvergi feilnótu.
Myndin er unun á að horfa. Æsispennandi, falleg og vægast sagt grípandi. Spennan er keyrð heldur betur upp, miðað við gömlu teiknimyndina og hremmingar Mógla eru slíkar að talað hefur verið um myndina sem The Revenant fyrir börn. Nokkrum sígildum bregðuatriðum er skellt í pakkann til þess að hrista aðeins upp í ungviðinu en allt er þetta innan öruggra marka.
Sjö ára dóttir mín skemmti sér stórvel yfir myndinni en þó ekki jafn vel og pabbi gamli þannig að myndin virkar fyrir alla aldurshópa. Og Shere Kahn er svo tilkomumikill og ógnandi að stúlkan stökk í fang pabba síns þegar hann fór að byrsta sig og hún er nú ýmsu vön og lét til dæmis Kylo Ren í The Force Awakens ekki setja sig út af laginu. Slíkur er nú slagkrafturinn í Elba í tígrisfeldinum.
Stelpan mín hafði það eitt út á þessa nýju útgáfu Skógarlífs að setja að hún væri ekki jafn fyndin og teiknimyndin. Og vissulega er minna um söng og glens en spennan og dramatíkin þeim mun meiri.
The Jungle Book er sjónrænt meistarastykki og frábær fjölskylduskemmtun sem svíkur ekkert Disney-barn, hvort sem það er fimm ára eða á áttræðisaldri.
Fjórar stjörnur á þessa snilld.
The Jungle Book (2016)
Leikstjóri: Jon Favreau
Aðalhlutverk: Neel Sethi , Bill Murray, Ben Kingsley, Idris Elba