Yrsa Sigurðardóttir er vandvirkur rithöfundur - og enn sér þess stað í nýjustu bók hennar, Sogið. Þessi knái og sannfærandi rithöfundur er einfaldlega að taka fram úr öðrum íslenskum glæpasagnahöfundum, enda er hún staðfastari en nokkur annar í sinni glæpafrásögn og heldur þræðinum betur en margir sem reyna við þetta glúrna ritform - og týna sér á stundum í hliðarfrásögnum. Í bókum Yrsu er fléttan alla jafna svo trúverðug, en jafnframt svo hrikaleg og sláandi í nákvæmustu lýsingum - sem á stundum raunar reyna talsvert á lesandann - að sá sem heldur þvölum höndum um bókina sleppir frekar svefni en að láta hana frá sér. Sogið er svo að segja sjúklega góð glæpasaga, örugglega sú besta sem kemur út fyrir þessi jólin, enda gefur blóði drifin drottningin hér ekkert eftir í snilldarlegri fléttu sem kemur í meira mæli á óvart en áður hefur þekkst ... minnst fjórar stjörnur, takk fyrir ...
Mjög líklega besta bók yrsu
Fleiri fréttir
Nýjast