Misheppnaðar jólagjafir – íslenskar konur leystu frá skjóðunni: niðursoðinn aspas – hrukkudagkrem – vigt og frosið brokkólí

Nú nálgast jólin óðfluga og fyrir þá sem ekki kíkja reglulega á dagatalið sitt þá eru aðeins rétt rúmlega fimm vikur til jóla.

Það er því ekki seinna vænna en að fara að undirbúa sig og velta fyrir sér jólagjöfunum í ár. Það getur nefnilega verið mikil pressa að ætla sér að kaupa jólagjafir handa öllum vinum og ættingjum síðustu dagana fyrir jól. Þá er mikið að gera í verslunum landsins og þú gætir lent í því að standa í miðri verslun, vita ekkert hvað þú átt að kaupa og grípa með þér það fyrsta sem þér dettur í hug.

Ef þú gerir það, þá gætir þú endað á lista eins og þessum hér fyrir neðan en hann er hluti af stórum lista sem Bleikt birti um árið. Þar deildu Íslenskar konur með lesendum þeim jólagjöfum sem þeim þóttu hvað misheppnaðastar:

  • Ég fæ reglulega hræðileg ilmvötn fyrir 7 ára stelpur.
  • Vigt. Það var samt ekki alveg glatað, meira fyndið og sætt þar sem ég var í átaki og búin að ná góðum árangri, en átti bara gamaldags ónákvæma vigt. Þetta var voða fín stafræn græja og með fylgdi fallegt hvatningarbréf. Þetta var aukagjöf og var mikið hlegið. Líklegast óvæntasta gjöf sem ég hef fengið frekar en glataðasta.
  • Vinkona mín fékk eitt sinn stærðarinnar ostakörfu frá vonbiðli, en hún er með óþol fyrir mjólkurvörum.
  • Á tímabili var ég mikið fyrir að vera í svörtu, nýtilkominn kærasti vissi þetta og gaf mér samt trefil, húfu, tvær töskur og veski í pastellitum, bleiku og allskyns litum sem ég hafði engan áhuga á að vera í. Allt frá útlöndum og enginn séns að skipta, eftir á að hyggja þá var þetta mjög lýsandi fyrir sambandið sem á eftir kom – hann eyddi miklu púðri í að reyna að breyta mér og bæta blessaður. Var líka að muna eftir því núna að 2 árum síðar gaf sá sami fyrrverandi mér trémerki með kínversku stjörnumerki, þar sem hann var nýkominn frá Kína. Það fyndna var að það var fyrir árið eftir að ég fæddist, sem sagt ekki mitt merki. 
  • Ég fékk hrukkudagkrem og næturkrem sem var fyrir 40+ ára. Amma var ekkert að spá í smáa letrinu. Ég myndi frekar segja að þetta hafi verið fyndin og eftirminnileg gjöf, en að hún hafi verið glötuð .
  • Þegar ég var svona 10 ára fékk ég bók sem var samansafn af bransasögum hjá Taxa-bílstjórum.
  • Mmm, ætli það hafi ekki verið bjalla á reiðhjól… og ég átti ekki einu sinni hjól.
  • Ananas (var samt alveg smá ánægð, ég var 5 ára).
  • 1 kíló af þurrkuðu mangói frá pabba í fyrra.
  • Blautt flísteppi – nýþvegið!. Þvílíkur herramaður að græja jólagjöf á síðustu stundu úr herberginu sínu.
  • Ég er ekki vön að vera vanþakklát, en þegar við systkinin vorum yngri þá var alltaf voða gaman að fá að opna pakka fra einni langömmunni því að í pökkunum voru, happaþrennur sem var búið að skafa, tölvuspil sem fylgdi með pulsupökkum, ónýtir maskarar og fleira í þeim dúr.
  • Fyrsta jólagjöfin frá fyrrverandi var rafsuðuhjálmur. Ef það er ekki það rómantískasta…!
  • Fjölskyldan mín virðist ekki skilja að bleikt fer ekki rauðhærðum, og ein jólin fékk ég allt bleikt. Grínlaust ALLT bleikt! Ég get ekki sagt að ég hafi verið í góðu skapi þau jól.
  • Fékk beyglað jólakökubox með gömlum piparkökum í af því PABBA MÍNUM fannst hálfkjánalegt að gefa mér það tómt! Pabbi toppaði sig algjörlega þau jólin.
  • 100 bita púsl með mynd af labradorhvolpi frá kærasta.
  • Brauðrist, rakvél og Írafár CD frá heittelskaða í sama pakkanum.
  • Ég fékk kort sem í stóð „Sigurbjörg“ en eg heiti Sigríður (kortið var frá fjölskyldu meðlimi).
  • Hálsmen frá kærasta með vitlausum staf.
  • Bróðir minn gaf einu sinni öllum í fjölskyldunni nammipoka, en svo gaf hann mér einni frosið brokkolí. Ég var kannski svona 8 ára og ég svoleiðis trompaðist! Þetta var samt djók gjöf!
  • Ein jólin fékk ég niðursoðinn aspas í dós frá múttu.
  • 500 kr inneign hjá símafyrirtæki sem ég var ekki einu sinni hjá
  • Mánaðarhálsmen fyrir ljónið. Ég er sporðdreki.
  • Ég fékk kassa af mjög dýrum fiski frá fjölskyldu mannsins míns. Ég er með bráðaofnæmi fyrir þessum fiski.
  • Bjórkanna með diskóljósi í botninum. Ég drekk ekkert áfengi.