Tvíeykið í Milkywhale hefur á skömmum tíma vakið mikla athygli í listalífinu hérlendis og einnig erlendis og eru m.a. tilnefnd til Nordic Music Video Awards fyrir fyrsta myndbandið sitt við lagið Birds Of Paradise. Linda Blöndal ræddi æa Hringbraut við Melkorku Sigríði Magnúsdóttur, dansara og annan helming tríeykisins en þau leggja mikið uppúr sjónrænum upplifunum á tónleikum, blanda saman alls kyns listformum meðfram tónlistinni. Í þættinum má sjá myndböndin og hvernig hljómsveitin kemur fram á magnaðnn hátt tónleikum, t.d. Iceland Airwaves. Hér má sjá umfjöllunina og viðtalið við Melkorku sem segir Milkywhale sitt aukasjálf.