Líkaminn þráir lax

Lax, lax og aftur lax var sungið í eina tíð af nokkurri áfergju – og þótt dágóður partur landsmanna líti á það sem nokkurn veginn heilaga stund að veiða þennan svo að segja goðsagnakennda fisk, þá eru enn fleiri sem vilja skella honum á pönnuna heima hjá sér og láta hann krauma á roðhliðinni í svo sem eins og fimmtán mínútur áður en honum er skellt yfir á hina í mínútu. Prófið að steikja hann í kókosolíu og kreistið sítrónu yfir í lokin, en notið annars bara salt og paprikukrydd á dásemdina. Lax gefur okkur bestu fitu sem völ er á, enda inniheldur hann mikið af Omega-3-fitursýrum sem bæði hugurinn og holdið heimta að fá reglulega.