Í dag er það bleikja

Matargerð á ekki að vera flókin - og oft er það einfalda einmitt það besta, einkum og sér í lagi ef hráefnið er gott og ótruflað af aukaefnum. Og þar kemur bleikjan sterkt inn með niðurskornum sætum kartöflum og klettasalati, aukið með litlum tómötum, smávegis lárperu og góðri olíu, jafnvel líka fetaosti út á. Snöggsteikið bleikjuna á heitri pönnu, smyrjið þunnu lagi af sinnepi yfir, stráið púðursykri þar yfir og möndlukurli í lokin. Skellið fisknum í ofn í 15 mínútur ásamt kartöflunum og njótið hollustunnar.