Mannfórnir í borgunarmáli?

Snaran þrengist stöðugt um háls fjármálaráðherra vegna Borgunarmálsins. Aðild Einars Sveinssonar föðurbróður Bjarna að málinu grefur undan trúverðugleika ráðherrans. Hann mátti alls ekki við því ofan á allt annað.

Á forsíðu Fréttablaðsins neitar Einar því að hafa rætt um Borgun við frænda sinn. Sú frétt varð ekki til að hjálpa þeim frændum því enginn sem til þekkir trúir þeirri yfirlýsingu eins nánir og þeir frændur eru.

Benedikt Sveinsson faðir Bjarna og Einar bróðir Benedikts hafa verið einkar samrýmdir og samstiga í öllum fjárfestingum í marga áratugi. Sameiginleg verkefni þeirra hafa mörg hver ekki verið í smærri kantinum. En þeir hafa jafnan verið samstiga í stórum sem smáum fjárfestingum. Oft hafa synir þeirra verið með í verkefnunum.

Hver trúir því að Einar hafi allt í einu farið að spila sóló þegar kom að Borgun og sniðgengið bróður sinn og náfrændur?

Meðal fyrirtækja sem Benedikt og Einar hafa fjárfest í saman eða með sonum sínum eru þessi: Sjóvá, Íslandsbanki, Hvalur, Eimskip, Nýherji, Flugleiðir, Olíufélagið, N1, Kynnisferðir, Tékkland og Vafningur svo eitthvað sé nefnt. Sameiginlegar fjárfestingar þeirra ná yfir áratugi.

Í viðskiptalífinu er nú um það talað að Bjarni Benediktsson muni gera hvað sem þarf til að beina athyglinni frá sér og fjölskyldu sinni vegna þessa máls - annað en að láta skila milljarðahagnaðinum sem þessi siðlausi samningur hefur haft í för með sér. Riftun væri vitanlega hið eina rétta.

Þess í stað er því spáð að peðum verði fórnað til að skapa frið um Landsbankann. Lárus Blöndal einn besti vinur Bjarna Ben er formaður Bankasýslunnar. Verður hann ekki látinn skipa nýtt bankaráð í Landsbanka á aðalfundi í næsta mánuði, bankaráð sem byrjaði á að skipta um bankastjóra?

Það kæmi mér ekki á óvart.

Hér í Svíþjóð væri stjórnmálamaður í stöðu Bjarna búinn að segja af sér vegna Borgunarmálsins. Sama gildir um Danmörku.

En á Íslandi ríghalda menn í stólana þó það dragi flokk þeirra niður í svaðið.