Létti sig um 15 kíló fyrir sýningu

Ein fjölhæfasta sviðslistakona landsmanna, Jóhanna Vigdís Arnardóttir var gestur Sigmundar Ernis í Mannamáli á Hringbraut í gærkvöld og er óhætt að segja að samtal þeirra hafi verið með líflegasta móti, en þáttinn má nú sjá hér á vef stöðvarinnar.

Velgengni þeirra verka sem Jóhanna Vigdís, eða Hansa eins og hún er jafnan kölluð, hefur verið með ólíkindum á síðustu árum - og er þar skemmst að minnast Píkusagna og söngleikjanna Chicago og Mary Poppins og nú síðast Mömmu Mia, en síðastnefna verkið slær einmitt sýningarmet í Borgarleikhúsinu um þessar mundir, 145. sýningin var í kvöld, sem er einni sýningu betur en var í tilviki Mary Poppins og sér engan veginn fyrir endann á sýningum á verkinu. Áttatíuþúsundasti gestur sýningarinnar er væntanlegur í hús nú um helgina, sem er auðvitað með hreinum ólíkindum; næstum fjórði hver Íslendingur hefur þar með séð þennan vinsæla söngleik Benny Andersen og Björns Ulveus úr Abba-flokknum.

Hansa er alin upp í Arnarnesinu, kölluð í fyrstu Hanna Dísa af systkinum sínum og vinum í götunni, þar á meðal núverandi forseta Íslands sem er jafnaldri Hönsu, en sá hinn sami fékk Hönsu til að syngja í innsetningarathöfninni í Alþingishúsinu á síðasta ári - og þegar hann hringdi, spurði hann einmitt eftir Hönnu Dísu - og Hansa kveðst eiginlega hafa orðið klökk að heyra þarna í gamla vininum sínum í götunni sem ennþá kallaði hana gamla gælunafninu og forðum daga.

Hún fékk frjálslegt uppeldi en agað þó - og foreldrarnir og lögmennirnir Örn og Guðrún lögðu megináherslu á að börnin þeirra þrjú gengju til mennta sem þau hefðu sjálf mestan áhuga á - og leiklistin varð fyrir valinu í tilviki Hönsu sem segir að valið hafi eiginlega alltaf legið ljóst fyrir; söngurinn og leikurinn hafi fléttast saman í lífi hennar frá barnsaldri - og eftirleikinn þekkja landsmenn; sigurganga Hönsu á sviðinu hefur verið samfelld frá því hún útskrifaðist sem leikari 1999.

Hún talar um líf og hlutskipti leikarans, einangrun hans í bland við athyglisþörf, nauðsynlegt innsæi hans og svo auðvitað útlitið sem oft og tíðum skiptir miklu máli; hún hafi til dæmis létt sig um heil 15 kíló fyrir uppsetningu söngleiksins Chicago fyrr á árum - og það hafi í raun og sann verið lítið mál, raunar eiginlega jafn auðvelt og að bæta kílóunum aftur á sig; hún sé nefnilega nautnaseggur inn við beinið.

Hún var lengi vel fráskilin og skildi sjálf ekkert í því af hverju hún gekk ekki út á árunum sem fóru í hönd og enginn virtist vilja reyna við hana! Svo hafi hún smám saman áttað sig á því að hún þyrfti sjálf að hafa frumkvæði, en vel að merkja; á tímabili hafi hún barasta verið orðin sátt við það að pipra. Svo hafi Steini komið, blessunarlega, með tvö börn í bónus og saman eignuðust þau önnur tvö; það skipti mestu og ekkert hlutverk hugnist henni betur en að vera mamma barnanna sinna.  

Og talandi um hlutverk; Hansa stendur nú á tímamótum, hefur tekið sér ársleyfi frá Borgarleikhúsinu og hyggst sinna verkefnastjórn menntamála hjá Samtökum iðnaðarins á komandi misserum, en maðfram því starfi mun hún samt leika Donnu í Mömmu Miu á kvöldin á meðan spurn er eftir þessu vinsælasta leikverki í sögu Borgarleikhússins.

Mannamál eru endursýnd næstu daga en ávallt frumsýnd á fimmtudagskvöldum klukkan 20:30.