Mamma íhugaði að skilja við laxness

Sigríður Halldórsdóttir, önnur tveggja dætra Auðar og Halldórs Kiljans Laxness er gestur Sigmundar Ernis Rúnarssonar í einlægu og hispurslausu viðtali í Mannamáli kvöldsins - og má segja að þátturinn rísi vel undir nafni að þessu sinni.

Óhætt er að telja að Sigríður leggi spilin á borðið í þættinum, en þar segir hún hreinskilnislega frá litríkri og að mörgu leyti köflóttri ævi sinni sem á stundum fór fram í skugganum af rismiklu listalífi föður hennar, svo og ákveðni og eindregni móður hennar, en á tímabili var Auður alveg að gefast upp á karlinum Laxness sem fór einatt sínar eigin slóðir.

Hún lýsir samskiptum foreldra sinna af einlægni og afdráttarleysi, en skefur jafnframt ekkert undan þegar kemur að því að lýsa sínu eigin lífi þegar hún tók sjálf stóra stökkið inn í fullorðinsárin og byrjaði að ala upp börn sín, kannski ekki alveg eins og á vanalegu heimili.

Vigdís Grímsdóttir hefur nú skráð lífshlaup Sigríðar í bókinni Elsku Drauma mín, en svo nefndi Halldór dóttur sína á æskuárum hennar í Gljúfrasteini sem var vel utan seilingar höfuðborgarinnar eins og vel kemur fram í skemmtilegri og áhugaverðri upprifjun þáttarins á einstakri ævi Sigríðar Halldórsdóttur.

Mannamál hefst klukkan 20:30 í kvöld.