Leiðari Morgunblaðsins fjallar um stjórnmálavanda Grikkja og hvernig Evrópusambandið hefur knésett Grikki. Sambandið sé að reyna að koma gríska forsætisráðherranum (og marxistanum) Tsipras frá völdum.
Það er jú skiljanlegt að taka upp varnir fyrir Tsipras, enda hann í erfiðri stöðu eftir að hafa lofað öllum öllu. Hann lofaði að hækka launin, lofaði að skera niður skuldir og efla velferðarkerfið og lífeyriskerfið stórlega á tímum alvarlegs niðurskurðar. Enginn alvöru stjórnmálahreyfing á Grikklandi treysti sér í slík yfirboð. Engin. Nú stendur byltingarmaðurinn Tsipras frammi fyrir veruleikanum – og kennir öðrum um. Þetta sé allt útlendingum að kenna. Þetta eru utanbæjarmennirnir.
Það sem vekur meiri athygli er að Morgunblaðið er í sama leiðara að verja (eina ferðina enn) Berlusconi fyrrum forsætisráðherra Ítalíu. Sá var 9 ár forsætisráðherra Ítalíu og afar umdeildur maður. Hann var ma. dæmdur í fjögurra ára fangelsi á Ítalíu. Meiru skiptir þá að hann var dæmdur frá öllum stjórnnálaafskiptum í fimm ár af dómsstólum þar í landi.
Hið virta breska tímarit Economist, birti 26. apríl 2001 forystugrein undir fyrirsögninni \Af hverju er Silvio Berlusconi óhæfur að leiða Ítalíu\'. Og sama tímarit í júní 2011