Lifir með kvíða hvern dag

Aron Valgeir Gunnlaugsson háskólanemi ræðir af einlægni um alvarlegan kvíða sinn í þættinum ,,Fólk með Sirrý\" á Hringbraut á miðvikudagskvöld. Kvíði er miklu algengari vandi en margir halda segir Aron. Hann rekur orsakir kvíðans til eineltis í grunnskóla. Heimir Snorrason sálfræðingur hjá Kvíðameðferðastöðinni ræðir kvíða og gefur góð ráð í þættinum.  Eins og margir sem þjást af kvíða hefur Aron Valgeir einangrað sig í gegnum árin og lítið talað um þessi mál. En óvenjulegar aðstæður urðu til þess að hann varð að mæta ókunnugu fólki. ,,Ég starfaði sem rafvirki og þurfti að fara inn á heimili og ræða við ókunnugt fólk. Ég kveið því oft gríðarlega að banka upp á hjá fólki og sat í bílnum í hálftíma og kveið fyrir. En ég varð að gera þetta. Og fólk tók mér vel. Það gerði mér gott að fá ekki að loka mig af heldur þurfa að mæta óttanum,\" segir Aron Valgeir í einlægu spjalli við Sirrý. Aron fann líka fyrir miklum líkamlegum erfiðleikum vegna kvíðans. Hann hefur fengið asma upp úr kvíðanum og fleiri líkamleg vandamál. Heimir Snorrason sálfræðingur hefur mikla reynslu af því að vinna með fólki sem líður fyrir kvíða. Hann gefur góð ráð í þættinum.