Lifðu lífinu í löngu

 Þú getur kallað hana blálöngu eða bara löngu; það skiptir engu máli fyrir þennan fulltrúa eins besta sjávarfangs sem hægt er að hugsa sér, en hvað sem öðru líður; hún er einhvers staðar mitt á milli þorsks og skötusels í áferð og bragði. Einfaldleikinn elskar þennan fisk í matreiðslu – og hann má aldrei vera of brasaður til að glata ekki kostum sínum: Sumsé; saltaðu hann og pipraðu duglega á hálfum hita á pönnu og láttu dóla undir kókosolíunni í 15 mínútur, snúðu flökunum vandlega við og smurðu steiktu hliðina með duglegu magni af hreinum rjómaosti, en eldaðu flökin svo í sosum 5 mínútur. Þú þarft enga sósu með þessum yndislega rétti.