Vart verður við vaxandi áhyggjur innan Sjálfstæðisflokksins vegna skelfilegar stöðu í skoðanakönnunum þar sem flokkurinn er kominn niður fyrir 20% múrinn sem flestir trúðu að yrði ekki rofinn.
Fundir hafa verið í flokksfélögum þar sem staðan hefur verið rædd og menn lýst þungum áhyggjum, nánast sorg.
Þannig kallaði flokksfélagið í Grafarvogi á bæjarstjóra Vestmannaeyja til að greina stöðuna. Elliði var stóryrtur að venju. Flokksfélagið í Kópavogi hélt fund á laugardag þar sem 30 fundarmenn sátu saman næsta ráðþrota. Þannig hefur þetta verið víða um land.
Mörgum finnst að ekki gangi lengur að kenna klúðursmálum Hönnu Birnu og Illuga einum um. Böndin berast æ meira að formanninum, Bjarna, kallinum í brúnni sem fiskar ekki.
Æ háværari eru raddir sem segja að hann verði að víkja. Fyrr fáist ekki viðspyrna.
En hver ætti að taka við formennsku?
Fátt er um fína drætti í núverandi forystuliði flokksins. Ólöf fæst því miður við veikindi, Illugi og Hanna Birna eru rúin trausti, Ragnheiður Elín hefur staðið sig afar illa og Kristján Þór þykir litlaus. Talið er að Einar Kristinn og Ragnheiður Ríkharðsdóttir ætli að hætta næst og um aðra þingmenn þarf varla að ræða.
Enginn efnilegur virðist í sjónmáli meðal yngra fólks í flokknum og enn síður eru öflugar konur að minna á sig.
Hver gæti tekið við formennsku?
Í örvæntingu hafa menn gengið svo langt að nefna Elliða Vignisson bæjarstjóra í Vestmannaeyjum eða jafnvel að vinna að endurkomu gamla foringjans, Davíðs Oddssonar.
Svona er komið fyrir Sjálfstæðisflokknum sem var pólitískt stórveldi á Íslandi í áratugi en er nú að koðna niður.