Leikkonuna Heiðu Rún Sigurðardóttur eða Heida Reed eins og hún kýs að kalla sig í dag þekkja líklega flestir Íslendingar en hún fór með aðalhlutverkið í þáttunum um Stellu Blómkvist.
Heida er einnig vel þekkt erlendis og fer hún með eitt af aðalhlutverkunum í þáttunum Poldark sem sýndir hafa verið hérlendis við mikla lukku. Heida er með yfir 63 þúsund fylgjendur á Instagram síðu sinni en í nýjustu færslu sinni deilir hún glæsilegri mynd af sér á sama tíma og hún viðurkennir óöryggið sem hún hefur upplifað frá táningsaldri.
„Áður en ég gerðist leikkona var ég fyrirsæta. Ég hef verið dæmd af útliti mínu síðan ég var fimmtán ára gömul. Það er meira en helmingurinn af lífi mínu! Ég komst aldrei upp á sýningarpallana jafnvel þótt ég hafi verið mikið grennri á þeim tíma, þá voru mjaðmir mínar alltaf taldar of stórar fyrir þennan bransa og það hefur fests við mig síðan þá. En ég sé að það er núna að breytast. Ég er þakklát fyrir líkama minn og hvernig ég lít út en ég á líka í erfiðleikum með útlit mitt ALLAN TÍMAN! Lærin mín hristast helling og ég er með miklu meiri appelsínuhúð heldur en sést á þessari mynd! Ég á í erfiðleikum með að halda mig við æfingar, ég á í flóknu samband við mat og ég er að vinna í því öllu. En það sem mér finnst mikilvægast að vinna í einmitt núna er að taka sjálfri mér fagnandi nákvæmlega eins og ég er núna. Ég vil vera hluti af þessum umræðum og opna sjálfa mig með ykkur.“