Ekki missa af ofsa

Fátt er merkilegra í lífinu en að koma orðlaus út af leiksýningu. Þannig er flestum innanbrjósts sem skella sér í gamla leikfimihúsið aftan við Þjóðleikhúsið, sem nú er kallað Kassinn, og berja Ofsa augum. Þessi leikgerð á sögu Einars meistara Kárasonar er svo auðug af ímyndunarafli að áhorfandinn veit á stundum ekki hvort hann sé staddur í útvarpsleikhúsi eða í bíósal. Og þéttur samleikur fjórmenninganna minnir á einhvern goðsagnarkenndan kvartett sem hefur starfað saman í áratugi. Breyskir og grátgjarnir víkingar í smóking svíkja engan.