Forsetaframbjóðandinn og friðarpostulinn Ástþór Magnússon var gestur síðdegisþáttarins BadaBing! á Hringbraut Fm 89.1 nýlega. Þar upplýsti hann að hann ætti „sem betur fer“ enga aflandsreikninga og að hann hafi farið illa út úr hruninu.
Ástþór sagðist mikið til hafa hætt í viðskiptum þegar hann stofnaði Frið 2000, þegar hann „langaði að fara að gera eitthvað annað og láta gott af mér leiða.“ Hann bætti því við að síðustu ár hafi helstu umsvif hans verið íslenskt fyrirtæki í bílainnflutningi.
Ástþór fór illa út úr hruninu, „vegna þess að ég átti peninga í Landsbankanum en ekki á einhverri Tórtóla-eyju. Heldur bara á eyju hérna úti í Atlantshafi og þar gufaði stór hluti af þeim upp.“
Ástþór segir Landsbankann hafa farið illa með sig: „Þeir voru að reyna að selja mér einhverjar fjárfestingar og ein sú fjárfesting sem ég fór illa út úr hjá þeim, til dæmis, var að þeir seldu mér kjöt.“ Ástþóri var sagt að um nautakjöt frá Texas í Bandaríkjunum væri að ræða og í fyrstu var reynt að selja honum gríðarlegt magn en keypti engu að síður vænan slatta.
„Við hrunið gufuðu síðan upp bæði peningarnir fyrir kjötinu og kjötið sjálft,“ segir Ástþór sem þráspurðist fyrir um kjötið sitt hjá Landsbankanum. „Hver át kjötið mitt?“ var meðal þeirra spurninga sem Ástþór hefur aldrei fengið svarað. „Síðan kom í ljós að kjötið var bara einhverjir verðlausir pappírar frá Lehman Brothers.“
Hægt er að hlusta á þáttinn hér. (Samtalið við Ástþór hefst á mínútu 53:05)
BadaBing! er á dagskrá Hringbrautar FM 89.1 alla virka daga frá 16-18
Hægt er að hlusta á Hringbraut í beinni útsendingu hér.