Hafðu það franskt

Bíó Paradís er auðvitað heimili og varnarþing margs þess besta sem framreitt er af kvikmyndum á Íslandi. Guðs laun fyrir þetta athvarf listrænna mynda og annarra þeirra sem af mikilli kúnst hafa haft svo mikil áhrif á fólk að það gengur fyllra út í ljósið en það kom inn í dimman salinn. Stundum stelur samt Háskólabíó allri þessari senu, nú síðast með frönsku kvikmyndahátíðinni í janúar, ekki síst brúðkaupsmyndinni sem enn er sýnd og allir verða að sjá af því hún er jafn mannbætandi og hún er sönn. Ömurlegt brúðkaup gerist ekki betra.