„Undanfarið hef ég verið að glíma við nokkur meiðsli sem er frekar pirrandi en eina manneskjan sem ég get kennt um er ég sjálf vegna þess að ég hef ekki hugsað nógu vel um líkama minn og leyft honum að jafna sig,“ segir Kristbjörg Jónasdóttir einkaþjálfari og eiginkona Arons Gunnarssonar landsliðsfótboltamanns.
Í nýjustu færslu sinni og svokölluðu „story“ á Instagram opnar Kristbjörg sig um mikið svefnleysi sem hún segir taka mikið á sig. Segir Kristbjörg að vegna mikilla anna hafi hún ekki haft tíma til þess að hugsa nógu vel um líkama sinn.
Finnur að hún er búin að fá nóg
„Ég ætla að vera alveg hreinskilin. Ég hita nánast aldrei upp fyrir æfingar og ég teygi nánast aldrei eftir þær. Sem er kjánalegt vegna þess að ég er stanslaust að minna kúnnana mína á að gera það án þess að gefa sjálfri mér tíma til þess.“
Þá segist Kristbjörg ekki hafa sofið í meira en fimm klukkutíma á hverri nóttu en líkt og margir vita eiga þau hjón tvo unga drengir sem getur tekið mikið á.
„Ég er bara við það að klessa á vegg. Ég finn það að ég er alveg búin að fá nóg. Líkaminn minn er mjög aumur, ég er rosalega þreytt. Fyrir utan það hvað svefn getur haft mikil áhrif á mataræði.“
Í gær setti Kristbjörg sér það markmið að ná sjö tíma svefni á hverri nóttu en viðurkenndi hún í morgun að hún hafi lítið sofið í nótt vegna drengjanna sinna.
„Þetta helst allt í hendur. Ég sá rannsókn um daginn sem sýndi fram á það að þeir sem sofa minna borðuðu meira. Það segir sig alveg sjálft þegar maður er þreyttur þá leitar maður í ákveðna skyndiorku sem er yfirleitt ekki það sem maður myndi velja venjulega. Maður gerir sér ekki grein fyrir því hvað það eru mikil forréttindi að geta verið með heilsu í að hreyfa sig og gera alla þessa hluti,“ segir Kristbjörg og minnir á þá staðreynd að fólk eigi bara einn líkama og því sé gott að fara vel með hann.