Uppáhalds Bandaríkja forseti minn og sá allra vanmetnasti er án efa L.B Johnson. Ég tel mig ekki vera sérfræðing í bandarískum stjórnmálum og gæti ekki þulið upp söguna sjálfa. Þessi mikli maður varð forseti á örlaga tímum þegar Kennedy var skotin í Texas 1963. Kennedy var myndarlegur maður með mikinn karakter og laðaði allstaðar að sér fólk, þá aðallega kvenfólk. Hugsjónir Kennedy eru sögulegar þar sem hann tók sér málsstað svartra, fátækra, kvenna og í raun þeirra sem minna máttu sín. Þó varð ótímabær dauðdagi hans til þess að þessar hugsjónir urðu ekki nema það; hugsjónir. Við tók Johnson sem fékk það hlutverk að færa hugsjónir í framkvæmd og það gerði hann. Johnson sat í skugga hugsjóna Kennedy en með þær að leiðarljósi áorkaði hann því sem þurfti og hlaut traust bandarísku þjóðarinar í annað kjörtímabil.
Sigmundur Davíð fyrrverandi forsætisráðherra okkar Íslendinga var einnig mikill hugsjónamaður, ef til vill óvinsælla hugsjóna en á einhverjum tímapunkti var hann kosinn af þjóðinni til að sinna þessum hugmyndum sínum. Sigmundur Davíð hröklaðist frá völdum vegna eigin mistaka og er ábyrgðin öll hans, að halda annað er meðvirkni á hættulegu stigi.
Við tók Sigurður Ingi og efast ég ekki að hann deili hugsjónum Sigmundar um betra bændasamfélag. Ég efast líka stórlega um endurkosningu þeirra Sigurðar og Sigmundar, eða ég rétt vona að við sem heild vitum betur. Eða erum við meðvirkir fylgjendur útrunnar stefnu? En hvað veit ég hér hafa ráðið sömu öflin í 100 ár, það er þó okkar að breyta því.
Förum varlega í hvern við kjósum næst og munum að það er ekki hver, heldur hverja við kjósum. Við búum í þingræði og það er hópurinn sem er lykil atriði, eltum ekki foringja í blindni heldur kjósum flokk þeirra sem við getum öll deilt hugsjónum með; bætt heilbrigðiskerfi, sterkar menntastoðir, lægri vextir, stöðugt efnahagslíf, fjölbreytt atvinnutækifæri, hallalaus fjárlög og góð samvinna við alþjóðasamfélag. Það er hópurinn fyrir mig, boltinn er hjá okkar og við skulum senda hann rétt eins og strákarnir okkar munu gera í sumar.