Síðdegisþáttur FM Tóta tekur á sig ýmsar myndir á Hringbraut FM 89.1 og var sérlega forn á fimmtudaginn þegar Tóti las upp úr Kjalnesinga sögu:
18. kafli
En er svo var komið kom flugvél sunnan úr Evrópu. Þar voru á sýrlenskir menn. Um borð var einnig maður er Óður Hlustandi hét, ungur og stórþriflegur. Þegar er Óður Hlustandi kom á land keypti hann sér Ákavíti og farsíma. Reið hann síðan suður um land og er ekki fyrr frá hans ferð sagt en hann kom aftan dags til Esjubergs. Lét hann lítið yfir sér. Þeir voru þar um nóttina því að þar var öllum mönnum matur til reiðu.
Um morguninn gekk Óður Hlustandi til tals við Flóttamann Sýrusson og mælti: „Svo er með vexti að eg á við þig erindi Flóttamaður,“ sagði hann.
Flóttamaður spurði hverning það var.
Óður Hlustandi mælti þá: „Haldið þið í alvöru að þið getið tekið fimmtíu karlmenn, sett þá á einn stað og það sé lausnin? Hvað hafa þeir að gera? Hvert fara þeir? Við hvern tala þeir? Eru þeir að læra íslensku?“
Flóttamaður segir: „Ver nú rólegur, lagsmaður. Ertu ekki kominn með neyðarnúmer?“ Að því sögðu fléttaði Flóttamaður sér vindling þann er við tóbak er kenndur.
Óður Hlustandi mælti: „Hefur þú eigi horft á unga stúlku í ræktinni og brugðið upp þínum snjalla síma til þess að festa hið ljósa man á mynd? Ef að það reynast vera annarlegar hvatir þarna að baki, þá flytjum við fólk.“
Æstist við þetta þingheimur allur og var ekki hlátur í hug er hann spurði einum rómi: „Hvers vegna er hópurinn eingöngu samansettur af karlmönnum?”
Svaraði þá Flóttamaður Sýrusson að húsnæðið væri þess eðlis að ekki væri hægt að bjóða upp á nægilega mikla aðgreiningu.
Greip þá Óður Hlustandi orðið og spurði. Allhvasst: „Ætlið þér allir að dvelja hér langdvölum við heitar setlaugar okkar? “
Flóttamaður glotti þá við tönn og svaraði að bragði: „Það eru ekkert allir sem verða hér áfram. Þeir eru ekki búnir að fá niðurstöðu í sín mál. Þeir sem fá vernd á Íslandi þeir fá þjónustu hjá sveitarfélögunum, aðrir fara heim.“
Var þá Óðum Hlustanda nóg boðið og mælti, argur nokkuð en þó eigi samkynhneigður og lá hátt rómur: „Á Íslandi eigið þér rummungar ekkert skjól og hverf á braut hið snarasta áður en Hermenn Óðins munu kasta yður fyrir róða.“
Flóttamaður svaraði þá að bragði: „Fögur er hlíðin svo mér hefur hún aldrei jafn fögur sýnst..... “
Lengra komst Flóttamaður eigi með ræðu sína þar sem Óður Hlustandi brá snjöllum síma sínum og lagði til hans þannig að hann féll örendur til jarðar.
Og ljúkum vér þar Kjalnesinga sögu hinni síðari.