Karl Ágúst og sonur halda áfram vegferð sinni um íslenska gamansamfélagið á Hringbraut í kvöld, en þessi nýja þáttaröð þeirra feðga hefur fengið prýðisgóðar viðtökur áhorfenda. Þriðji þátturinn er á dagskrá Hringbrautar klukkan 21:30 í kvöld.
Í tilefni vetrarbyrjunar og veðurlagsins úti fyrir munu þeir skauta yfir margt og misjafnt í kvöld, en einkum og sér í lagi munu þeir trumpast vegna pólitískra atburða í Vesturheimi fyrir nú utan að gera sér mat úr undarlega kryddaðri pólitíkinni hér heima fyrir þar sem enginn veit lengur hver er sætasta stelpan á ballinu.
Eins og áhorfendur hafa tekið eftir hefur Karl Ágúst Úlfsson fengið son sinn Eyvind Karlsson með sér í þáttagerðina í vetur, en sá yngri er leikstjóri, rithöfundur og þýðandi og tónlistarmaður, eða í sem fæstum orðum eplið í námunda eikarinnar.
Upptökur þáttarins fara fram á öllu Eiðistorginu þar sem Hringbraut er til húsa, jafnvel á Rauða ljóninu, en fastagestir torgsins verða eftirleiðis að gera sér að góðu að hafa þessa pörupilta í námunda við sig.
Karl Ágúst og sonur eru frumsýndir með talsverðum látum klukkan 21:30 í kvöld.