Júrólag gretu fær fremur slaka dóma

Engin ástæða er til að kvíða hvernig Ísland þurfi að bregðast við ef sigur vinnst í sönglagakeppni Evróvisjón. Erlendir veðbankar spá framlagi Íslands, \"Hear them calling\" litlum frama. Skv. vefnum Oddschecker er laginu spáð 20. sæti.

Árlega fær hluti þjóðarinnar áhyggjukast yfir þeim möguleika að Ísland vinni Evróvisjón þótt innst inni sé það draumur margra. Áhyggjurnar snúa að húsnæðismálum og framkvæmd. Sigurvegarar keppninnar verða gestgjafar ári síðar. Víst er að vandi myndi skapast ef Ísland ynni.

Sá vandi virðist úr sögunni þetta árið að minnsta kosti.

Þá gæti það glatt vanafasta að skv. heimasíðu OGAE, samtaka aðdáenda, er lagi Gretu Salome spáð 16. sæti.