„Við erum öll farþegar í flugvél. Það er mikið reykt í vélinni og það veldur mörgum farþegum óþægindum. Sérstaklega eru börnin óhress með það. Nokkrir læknar og vísindamenn sem eru um borð fullyrða að tóbaksreykurinn valdi hjartasjúkdómum og krabbameini. Aðrir, sérstaklega pípureykingamenn, draga það í efa.“
Á þessum orðum hefur Jón Gnarr stutta en áhrifamikla sögu sem hann birti í stöðufærslu á Facebook síðu sinni í gærkvöldi. Færslunni hefur þegar verið mikið deilt um samfélagsmiðla og hafa margir lofað hana.
Söngvarinn og samfélagsmiðlastjarnan Pétur Örn Guðmundsson, betur þekktur sem Pétur Jesús segir skrifin meira að segja meðal þeirra bestu sem hann hefur lesið í langan tíma.
Vélin mun hrapa
Færslan er dæmisaga sem snýst um ábyrgð, val og þrýsting.
Færslan heldur áfram og segir:
„Þeir sitja líka fremst í vélinni, á Saga Class og vilja njóta þess að kveikja sér í Sweet Dublin eftir matinn. Hópur af veðurfræðingum situr aftast. Þau segjast hafa reiknað það út að ef reykingunum verði ekki tafarlaust hætt muni reykurinn eyða súrefnisbirgðum vélarinnar á meðan hún er enn í lausu lofti og hún muni hrapa til jarðar og segja að við eigum einungis súrefni til 2-3 tíma en flugið er miklu lengra.“
Þá segir Jón að enginn efist um orð vísindamannanna nema örfáir sem segja þau ekki byggð á rökum heldur flughræðslu. Flestir átti sig þó á því að eitthvað verði að gera.
„Margir eru því byrjaðir að ókyrrast og kalla eftir því að reykingar verði hreinlega bannaðar um borð. Sérstaklega eru börnin að verða hávær. Sum eru jafnvel byrjuð að gráta af óþægindum og skelfingu. Það eru bara flugstjórarnir sem hafa vald til að taka ákvörðunina um að banna reykingar alfarið það sem eftir er flugferðarinnar. En þeir eru tregir til þess. Farþegarnir hafa jú allir keypt sér reyk-flug“
Samfélagsleg ábyrgð
Segir Jón flugmennina óttast uppþot meðal farþeganna og að karlarnir á Saga Class muni jafnvel snúa baki við flugfélagið. Ekki bæti úr skák að sígarettur og vindlar hafi verið ein helsta tekjulind flugfélagsins.
„Flugstjórarnir óttast því um stöðu sína og jafnvel að þeim verði sagt upp vinnunni ef þeir tækju svona afdrifaríka ákvörðun, sem varðaði upplifun og ferðaánægju farþeganna. Það er jafnvel svo hart að nokkrir kallarnir á Saga Class eiga stóran hlut í flugfélaginu sem rekur vélina og borgar laun flugstjóranna.
Flugstjórarnir hafa því brugðið á það ráð að biðja flugfreyjurnar að beina þeim vinsamlegu tilmælum til farþeganna að sýna nú samfélagslega ábyrgð og draga aðeins úr reykingum sínum. Flestir taka því vel en þetta er langt flug og freistandi að kveikja sér í einni og einni rettu, sérstaklega þegar þeir sjá aðra gera það.“
Þá segir Jón flugstjóranna taka ákvörðun um að banna eldspítur um borð en að farþegarnir fái þó klukkutíma til þess að aðlagast því. Bannið sé þó einungis þannig að flugreyjunum er bannað að gefa eldspýtna bréf en þær megi selja það. Það hafi þó lítil áhrif á kallana á Saga Class.
„Nokkrir farþegar hafa þó tekið þá ákvörðun að draga stórlega úr reykingum sínum eða jafnvel hætta þeim alveg. En það skiptir litlu máli því vélin er stór og farþegarnir margir og jafnvel hinir reyklausu eru sveipaðir reykjarkófi þótt þeir reyki ekki sjálfir. Nokkur börn á skólaaldri hafa tekið sig saman og sest á gólfið og segjast sitja þar sem fastast þar til eitthvað verði gert í reykingunum. Margir farþegarnir dást að hugrekki þeirra.“
Börnin átta sig á alvarleikanum
Fljótlega fer þó að verða súrefnisskortur í vélinni og ákveður flugstjórinn að ávarpa farðegana.
„Hann kveikir sér í góðum vindli og tekur upp talstöðina. Ábúðarfullri röddu hvetur hann til þess að hver og einn líti nú í eigin barm og spyrji sjálfan sig hvort hann þurfi virkilega næstu sígarettu og stingur svo uppá því að allir taki höndum saman og ákveði í sameiningu að reykja bara aðra hvora af þeim sígarettum sem þeir ætluðu að reykja. Hann tilkynnir líka að hann muni ganga fram með góðu fordæmi og reykja einungis fyrsta flokks kúbuvindla héðan í frá og hvetur aðra til að fylgja fordæmi sínu.“
Á þessum tímapunkti segir Jón börnin á gólfinu vera byrjuð að gráta. Þau hafa áttað sig á því að fullorðna fólkið ætlar ekki að hætta að reykja þrátt fyrir að þau viti að sígaretturnar muni éta upp súrefnisbirgðir vélarinnar.
„Og þau eru líka byrjuð að fattta að eins mikið og flugstjórarnir og flugfreyjurnar tala um mikilvægi þess að við förum nú öll bráðum að grípa til einhverra aðgerða þá eru þau líklega ekki að fara að grípa til þeirra. Þau munu hækka eldspýturnar um 50 kall í viðbót og um það bil sem flugstjórinn er að missa meðvitund af súrefnisskorti verður sala og dreyfing á filterslausum kannski algjörlega stöðvuð. Flugstjórarnir eru ekkert að fara að banna reykingar um borð Þetta er nefnilega reykflug.“
Saga Jóns hefur opnað augu margra og sýnir hún vel hvernig stjórnleysi, óábyrgð og val fólks getur skipt sköpum upp á framtíðina.