Jói kíkir í skúrinn og kynnir sér rafta

Í ökutækjaþættinum kíkt í Skúrinn, þætti sem sýndur verður á Hringbraut í kvöld og Jói Bachmann stýrir, verður fræðst um tvo magnaða hópa sem kalla sig Raftar. Það eru Bifhjólafjelag Borgarfirðinga og Fornbílafjelag Borgfirðinga sem eru með félagsaðstöðu í sama húsi, á sitthvorri hæðinni.

\"Raftar voru loksins að fá húsnæði fyrir sína starfsemi og geta nú keyrt hjól inn og haft til sýnis. Félagsmenn sáu svo um að standsetja aðstöðuna. Ég fékk að skoða hjá þeim aðstöðuna og auðvitað ræðum við við formann klúbbsins,\" segir Jói.

Fornbílafjelagið er komið í um 2000 fermetra húsnæði sem þeir sjá um og hafa þar flottan sal að sögn þáttastjórnanda sem fyrirtækja- og starfsmannahópar hafa komið að og fengið að skoða dýrgripi með leiðsögn. \"Frábært framtak hjá klúbbnum. Bifhjólafélagið er nýkomið með sína aðstöðu og þeir eru á fullu að standsetja hjá sér.\"

Þessir tveir klúbbar verða með sameiginlega Bifhjóla- og fornbílssýningu 7. maí frá 13:00 - 17:00 í Brákarey. Frítt verður inn fyrir alla og einnig verður frítt fyrir mótorhjól og fornbíla í Hvalfjarðargönginn í tilefni sýningarinnar.

Hitt efnið í þættinum lýtur að því hvernig hægt sé að auka líkurnar á að fá fulla skoðun á bílinn okkar? \"Til að svara því ræðum við við Berg Helgason framkvæmdastjóra Aðalskoðunar en hann og starfsmenn hans leiða okkur í allan sannleika.\"

Óla Bruna þarf svo varla að kynna fyrir ökutækjaáhugamönnum en \"...þessi öðlingur er með enn eitt glæsihjólið sem hann ætlar að kynna fyrir okkur,\" segir Jói.