Jóhanna Guðrún söngkona og Max Petrov sigruðu í keppninni Allir geta dansað. Á meðan keppnin stóð yfir fóru af stað sögusagnir að þau væri ástfangin og á kaffistofum bæjarins var slúðrað um mögulegt framhjáhald. Þau sigruðu með yfirburðum, náðu vel saman og neistaði á milli þeirra í mörgum dansatriðunum. Jóhanna Guðrún og eiginmaður hennar, Davíð Sigurgeirsson fagna í þessum mánuði eins árs brúðkaupsafmæli.
Jóhanna Guðrún opnar sig um þessar sögusagnir og slúður í ítarlegu viðtali við Vísi. Þar neitar Jóhanna Guðrún að nokkuð hafi átt sér stað á milli hennar og Petrov á meðan keppninni stóð. Hún segir:
„Mér finnst ótrúlegt hvað fólk getur setið á einhverjum kaffistofum um allan bæ og talað um einhverja hluti eins og það sé sannleikur þegar þau vita ekkert um það.“
Þá segir Jóhanna að fólk átti sig ekki alltaf á því að slúður geti haft mikil og djúp áhrif á líf fólks og frama þess í starfi. Jóhanna Guðrún segir:
„Ef þú hefur ekki séð það þá veistu það ekki. Þó að einhver Gunnhildur á kaffistofunni á hárgreiðslustofunni þinni hafi sagt þetta þá veistu samt ekkert um það og hún veit ekkert um það.“
Jóhanna segir að dansatriðin hafi verið eins og um leiksýningu væri að ræða og það yrði að líta út fyrir eins og væri einhver tenging, annað væri einkennilegt. Hún bætir við að lítið sé hægt að gera við svona slúðri, nema að halda bara sínu striki.
„Það þarf alltaf að vera einhver tenging, þetta er náttúrulega bara sýning og við hefðum nú ekki unnið þessa keppni ef við hefðum ekki áttað okkur á því. Það er ekki eins og allar æfingar hafi verið svona, guð minn góður.“ Þá segir Jóhanna Guðrún einnig:
„Svona slúður er bara algjört bull. Fólk veit ekki neitt. Auðvitað er samt pirrandi þegar maður heyrir eitthvað sem er algjört rugl og fólk skuli leyfa sér að tala einhvern veginn um mann sem að er ekkert satt.“