Linda Björg Árnadóttir, hönnuður og lektor við fatahönnunardeild Listaháskóla Íslands, segir Íslendinga þurfa að huga meira að innihaldi þess sem það kaupir sér í stað þess að kaupa sér marga og lélega hluti. Við þurfum að hugsa um innihaldið og kaupa verðmætari vöru og eitthvað sem hefur einhverja sögu að segja. Hún segir að ömmur okkar séu fyrirmynd í þessum efnum, þær hafi vandað valið þegar kaupa átti spariskó eða fína kápu og átt það í áratugi. \"Fötin sem við kaupum í dag munum við ekki finna á flóamörkuðum framtíðarinnar\", segir Linda. \"Þau verða löngu orðin ónýt og komin í ruslið\". Linda hefur sterkar skoðanir og mikla þekkingu á textíl og fatahönnun. Linda Blöndal mun í kvöld klukkan 20 hitta nöfnu sína í höfuðstöðvum hennar í Skipholti þar sem hún sýnir og selur Scintilla vörur sínar.
Innihald en ekki drasl
Fleiri fréttir
Nýjast