Illugi kjöldreginn í rúvmálinu

Enn veikist staða Illuga Gunnarssonar eftir að honum tókst ekki að koma því í gegnum ríkisstjórnina og þingið að útvarpsgjaldið yðri óbreytt milli ára. Ákvörðun um að lækka gjaldið um kr. 1.400 á mann, úr kr. 17,800 í kr. 16,400, gerir það að verkum að RÚV verður af 500 m.kr. tekjum á næsta ári. Ráðherra hefur lagt allt kapp á að halda óbreyttu útvarpsgjaldi en hefur ekki haft afl innan stjórnarflokkanna til að koma því í gegn.


Væntanlega ræður þar miklu að hann er mikið til rúinn trausti í samfélaginu vegna fjármálasukks í tengslum við Orka Energy fyrirtækið sem hefur bjargað honum vegna persónulegra fjárhagsvandræða en hann hefur á móti greitt götu fyrirtækisins í Kína langt umfram það sem eðlilegt og viðeigandi getur talist. Veik staða Illuga veldur því að hann hefur ekki getað staðið við loforð sín til stjórnar RÚV um óbreytt framlög að raungildi til stofnunarinnar. Fjandvinur hans, Guðlaugur Þór Þórðarson varaformaður fjárlaganefndar, hefur nú séð sér leik á borði og brugðið fæti fyrir Illuga. Vitað er að þeir hafa eldað grátt silfur saman á vettvangi Sjálfstæðisflokksins um árabil. Mörgum er kunnugt um hve illa þeir hafa talað hver um annan og fagnað erfiðleikum og ósigrum hvor annars í stjórnmálum. Guðlaugi Þór er nú skemmt.

Á visir.is í dag er fjallað um stöðu Illuga vegna RÚV-málsins undir fyrirsögninni “Tvísýnt um pólitískt líf Illuga.” Þar er sagt að hann sé niðurlægður sem ráðherra með því að fram komi að hann hafi ekki afl til að koma í gegnum þingið nauðsynlegum ákvörðunum vegna þeirrar lykilstofnunar sem RÚV er. Vitað er að í marga mánuði hefur verið rætt um að Illugi verði að víkja úr ríkisstjórninni vegna vafasamrar stjórnsýslu hans í tengslum við Orka Energy. Sumir gagna svo langt að tala um hann sem “handlangara” einkafyrirtækis og að hann geti ekki gegnt ráðherradómi eftir það sem á undan er gangið. RÚV-málið er sannarlega ekki að hjálpa honum.

Sl. haust var mikið rætt um að formenn stjórnarflokkanna hygðust gera breytingar á ríkisstjórninni um komandi áramót til að freista þess að fríska upp á laskaða ásýnd stjórnarinnar. Einkum var þá rætt um að Illugi færi út ásamt Ragnheiði Elínu Árnadóttur og Sigrúnu Magnúsdóttur. Ekki var vitað hverjir kæmu inn í ríkisstjórnina í stað þeirra enda ekki úr miklu að moða þegar litið er yfir þinglið stjórnarflokkanna.

Þessi umræða hljóðnaði síðan og var búist við því að engar breytingar yrðu gerðar um áramótin því formenn flokkanna treystu sér ekki til þess, hefðu hreinlega ekki nógu sterka stöðu innann þingflokka sinna til að gera nauðsynlegar breytingar.

Eftir raunir Illuga í RÚV-málinu þykir nú að nýju allt eins líklegt að hann verði látinn víkja úr stjórninni um áramót. Ekki þykir boðlegt að láta hann einann taka pokann sinn og því má ætla að þær Ragnheiður Elín og Sigrún fylgi með en þær þykja ekki hafa orðið að miklu liði innan ríkisstjórnarinnar.

Ég leyfi mér að fullyrða að hér í Svíþjóð þyrfti ekki að velta vöngum yfir pólitískri framtíð ráðherra sem stæði jafn veikt að vígi og Illugi Gunnarsson gerir á Íslandi. Slíkur ráðherra ætti sér ekki viðreisnar von og væri horfinn úr ríkisstjórn án þess að nokkrum kæmi það á óvart.

Spennandi verður að sjá hvort dregur til tíðinda á ríkisráðsfundi um áramótin á Bessastöðum. Munu formenn flokkanna sýna þann manndóm að gera óhjákvæmilegar breytingar á ríkisstjórninni eða munu þeir ákveða að leggja af stað inn í síðasta heila árið sitt í ríkisstjórn með lík í lestinni?