Umhyggja fyrir öðrum er það fyrsta sem deyr í stjórnmálum þegar á móti blæs. Þess vegna mun Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fórna félaga sínum Illuga Gunnarssyni. Til tíðinda hlýtur að draga alveg á næstu dögum.
Vitað er að Bjarna og Illuga hefur verið allgott til vina og hafa þeir stutt hvor annan í innanflokksátökum og öðrum hremmingum sem hrjáð hafa flokk þeirra hin síðari ár. Staða flokksins er hins vegar svo garfalvarleg að Bjarni á engar pólitískar innstæður til að skjóta skildi fyrir Illuga í þeim miklu klúðursmálum sem Illugi hefur komið sér í og hafa orðið opinber að undanförnu. Illugi er rúinn trausti meðal fjölmiðlamanna sem hann hefur reynt að afvegaleiða og trúlega einnig meðal þorra kjósenda sem sjá í gegnum ótrúverðugar skýringar hans en Illugi hefur hrakist úr einu vígi í annað.
Kínaferð Illuga mun trúlega reynast honum fjötur um fót en um ferðina sagði hann: “Sannleikurinn er afstæður.” Fræg voru ummæli Vigdísar Finnbogadóttur í Kínaferð hennar árið 1995 en þá ollu ummæli hennar nokkrum skjálfta þegar hún mælti: “Mannréttindi eru afstæð.”
Má e.t.v. draga þann lærdóm af þessu tvennu að fyrirmenni þjóðarinnar ættu ekki að fara í heimsóknir til Kína?
Ólánið eltir Sjálfstæðisflokkinn. Það er eins og flokkurinn sé andsetinn. Bjarna er vorkunn. Fólkið sem hann valdi með sér í ríkisstjórn fyrir 2 árum dugar ekki. Hanna Birna er fallin og hefur þegar hrakist frá vegna lekamálsins. Illugi er væntanlega að fara sömu leið. Flokkurinn mælist með lítið fylgi og er að festast í 25% fylgi í stað 35% sem áður var. Ráðherrum flokksins hafa verið mislagðar hendur og þeir hafa fáu komið til leiðar á þessum fyrri hluta kjörtímabilsins. Svo bætast við þessi dæmalausu klúðursmál eins og lekamál Hönnu Birnu og núna sukkið í kringum Illuga og Orka Energy.
Illugi Gunnarsson og Hanna Birna eru lík í lest Sjálfstæðisflokksins. Bjarni á sennilega ekki annan kost en að skipta Illuga einnig út úr ríkisstjórninni. Hann verður að losa sig við líkin í lestinni.
Tengsl Illuga við Orka Energy hafa vakið vaxandi furðu og nú eru ýmsir farnir að tjá sig um málið í heild. Dæmi um það er eftirfarandi sem Páll Vilhjálmsson, pistlahöfundur hjá Morgunblaðinu, sendi frá sér:
“Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra er á framfæri Orku Energy; þaðan fékk hann laun þegar hann var launalaus vegna hrunmála og Orka Energy bjargaði Illuga frá gjaldþroti með því að kaupa af honum íbúðina og leigja til baka.
Orka Energy stórgræðir á framfærslu menntamálaráðherra Íslands. Fyrirtækið sem starfar í útlöndum teflir fram ráðherra til að tryggja sér viðskiptasamninga. Illugi skipulagði ferð til Kína í þágu Orku og skreytti ferðina með nokkrum embættismönnum í undirstofnunum ráðuneytisins til að láta líta svo út að hér væri ekki ferð til að gjalda Orku Enegy greiða.
Engin brýn ástæða var fyrir Kínaferð Illuga, önnur en hagsmunir Orku Energy. Ráðherra mátti sjálfur gerst vita um vanhæfi sitt gagnvart öllum málum sem snertu Orku Energy og átti að halda sér í mílu fjarlægð frá fyrirtækinu.
Hrunmálið sem gerði Illuga að próventukarli hjá Orku Energy var seta hans í Sjóði 9 hjá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni í Glitni. Það er sorrí saga um mann sem átti að vita betur.
Illugi heldur ekki máli sem ráðherra. Hann getur ekki þjónað almannahagsmunum þegar hann er ekki sinn eigin maður heldur annarra.”
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, mun trúlega ekki reyna að verja spillingarmál Illuga. Honum verður fórna. Það kallar á breytingar í ríkisstjórninni. Því skyldi Bjarni þá ekki nota tækifærið og taka almennilega til á sínum bæ og losa sig um leið við Ragnheiði Elínu Árnadóttur sem hefur verið afar klaufaleg í sínum embættisfærslum. Náttúrupassamálið er klúður í hennar höndum og ætti að leiða til þess að henni yrði skipt úr sem ráðherra.
Ef Bjarni sýnir þann manndóm að skipta þeim báðum út, þá opnast ýmsir möguleikar á uppstokkun: Illugi og Ragnheiður Elín færu út. Þá væri hægt að færa Ólöfu Nordal yfir í menntamálin sem væri henni sennilega kærkomið (sjálfu barnabarni Sigurðar Nordal), Unnur Brá tæki þá við innanríkisráðuneytinu, en hún er löglærð og Jón Gunnarsson yrði iðnaðar-viðskipta-og ferðamálaráðherra. Hann fengi þá hreint borð til að greiða úr vitleysunni sem Ragnheiður Elín hefur spunnið upp varðandi ferðamannapassann síðustu tvö árin.