Farðu í leirfótabað í hveragerði

Blómabærinn Hveragerði státar af hveragarði sem fólk víðsvegar að úr heiminum kemur til njóta  en margir Íslendingar vita ekki af garðinum sem er staðsettur mitt í bænum.

Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri í Hvergerði gekk með Ívari starfsmanni Hveragarðsins, Sirrý og Friðþjófi Helgasyni myndatökumanni um Hveragarðinn í þættinum Lífsins list á Hringbraut í sumar, en þar er hægt að sjóða sér egg í hvernum, hita hverarúgbrauð, fá sér kaffi í glerskála, krækja sér í vínber, tómata og annað góðgæti sem vex í gróðurskálanum.

Og gegn vægu gjaldi er hægt að skella sér í leirfótabað sem er á að giska einstök upplifun.

Hveragarðurinn í blómabænum fyrir austan fjall er enn eitt dæmi þess hvað Íslendingar fara oft á mis við upplifun Íslands, en þeir þurfa oftar að skoða landið sitt með gestsaugana - og þá er víst að þeir sjá meira en dags daglega.