Hvar værum við án tinu?

Um að gera að munstra sig á heiðurstónleikana með madömmu Tinu Turner í systrunum Hofi og Hörpu á næstu vikum. Heiðurstónleikar þurfa ekkert endilega að vera vel heppnaðir og eru sumir hverjir jafnvel svolítið kjánalegir en þessir geta bara ekki klikkað. Tina er bæði náttúruafl og eldhaf í allri sinni tónlist og það er á við að setja ofan í sig allt það vítamín sem veröldin á að hlusta á kraftinn í konunni. Og hér er það kvennalandslið Íslands í ofursöng sem ætlar sér með tærnar að hælum hennar Turner. Og tekst það líklega.