Hvalur veldur kvalræði

Sjónvarpsstöðin Hringbraut var með áhugaverðan umræðuþátt um hvalveiðar Íslendinga á mánudagskvöldið. Sigursteinn Másson ítrekaði þá skoðun að hvalveiðar Íslendinga væru að skila afar litlu til þjóðarbúsins, takmörkuðum gjaldeyristekjum og nær engum ávinningi en væru aftur á móti að skaða orðspor þjóðarinnar og sífellt vermætari ímynd. Ljóst er að alþjóðasamfélagið lítur okkur hornauga út af þessari villimannslegu starfsemi sem verður ekki lengur réttlætt með verðmætasköpun.

Því var haldið fram í þættinum að stórhvalaveiðar Hvals hf. væru fyrst og fremst hugðarefni og ástríða eins manns, Kristjáns Loftssonar, sem ætlar að halda þessu áfram eins lengi og hann getur, hvað sem öllum rökum líður. Veiðum á langreyðum hefur verið mótmælt harkalega í Evrópu og Bandaríkjunum. Margir óttast að þessi starfsemi sé þegar farin að skaða markaðsstarfsemi fyrir sjávarafurðir Íslendinga að ekki sé talað um þann skaða sem þetta getur valdið ferðaþjónustu landsmanna sem nú er orðin langmikilvægasta gjaldeyrisöflunargrein þjóðarinnar.

Í þættinum kom fram að á milli 200 og 300 þúsund ferðamenn fara í hvalaskoðun á ári hverju hér á landi. Þetta er orðin mikilvæg grein innan ferðaþjónustunnar sem hefur stuðlað að margháttaðri uppbyggingu á sviði veitingarekstrar, í verslun, samgöngum og fleiri greinum samhliða hvalaskoðuninni. Bent er á að Íslendingar muni ekki komast upp með þann tvískinnung til frambúðar að selja fólki aðgang að hvalaskoðun en stunda jafnframt umdeildar veiðar gegn vilja alþjóðasamfélagsins.

Í þættinum kom fram að Hvalur hf. væri peningaveldi sem beitt væri miskunarlaust í hagsmunabaráttu fyrir hvalveiðum og viðhaldi gjafakvótakerfisins en Hvalur hf. er langstærsti hluthafinn í HB Granda hf. sem er annað stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins á eftir Samherja.

Ekki var farið lengra út í að gera grein fyrir því fjármálaveldi sem þarna er á ferðinni. Hér á eftir verður bent á nokkrar mikilvæg atriði sem tengjast því.

Samkvæmt nýjasta riti Frjálsrar verslunar 300 stærstu var velta Hvals 4,3 milljarðar króna árið 2014 og hagnaður 3,1 milljarður. Bókfært eigið fé var þá 15,7 milljarðar og heildareignir 23,7 milljarðar. Ljóst er að margar eignir félagsins eru lágt metnar og fullafskrifaðar enda gamlar. Hvalur er gríðarlegt peningaveldi sem kemur m.a. fram í 33,5% eignarhlut í HB Granda í gegnum dótturfélagið Vogun. Grandi var í 25. sæti á listum Frjálsrar verslunar árið 2014 með 33 milljarða króna veltu og hagnað fyrir skatta sem nam 6,7 milljörðum. HB Grandi er með mestan kvóta allra sjávarútvegsfyrirtækja landsins. Samherji er þó stærri ef saman er lagður kvóti hans og tengdra fyrirtækja.

Talið er að styrkur Hvals hf. sé svo mikill, meðal annars vegna verðmætra eignarhluta í arðsömum fyrirtækjum eins og að framan greinir, að það skipti fyrirtækið litlu máli þó það haldi úti hvalveiðum með tapi ár eftir ár. Leiðtoginn Kristján Loftsson getur leyft sér að sinna þessu hugðarefni sínu af kunnri ástríðu án þess að fyrirtækið muni mikið um það.

Ekki er þó víst að allir hluthafar Hvals séu sáttir við að Kristján Loftsson haldi áfram með þetta óarðbæra gæluverkefni sitt. Kristján í Hval á ekki Hval hf. einn, eins og margir halda. Samkvæmt því sem ég kemst næst eiga 3 fjölskyldur megnið af hlutafé fyrirtækisins. Þannig hefur það verið í áratugi og færst milli kynslóða gegnum arf eins og eðlilegt er. Um er að ræða hluthafa sem vilja sjá hámarksarð af eignum sínum. Kristján Loftsson og fjölskylda hans er talinn eiga um 30% hlutabréfa í Hval hf. Svipaður eignarhluti er í eigu fjölskyldu Árna heitins Vilhjálmssonar prófessors. Þá munu Einar Sveinsson og Benedikt Sveinsson, faðir fjármálaráðherra, eiga um 30% hlutabréfa í félaginu ásamt nánum ættingjum.  Um tíundi hluti skiptist svo á ýmsa aðra hluthafa.

Hagsmunir tengdir Bjarna Benediktssyni eru því til umfjöllunar þegar stjórnvöld taka ákvarðanir um hvalveiðar íslendinga og allt of hófleg veiðileyfagjöld í gjafakvótakerfi landsmanna.

Ætla menn áfram að horfa aðgerðarlausir á að Hval hf. og fáeinum öðrum hvalveiðurum verði leyft að skaða hagsmuni þjóðarinnar og skemma orðspor landsins?  

Þá þarf sérstaklega að hafa gætur á hvernig peningaveldi á borð við Hval hf. er beitt í grímulausri hagsmunabaráttu.

Hvalur hf. getur orðið þjóðinni kvalræði.