Forsætisráðherra var í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Varð honum m.a. tíðrætt um gróða bankanna, sem hefur numið næstum 500 milljörðum frá hruni og 108 milljörðum á síðasta ári. Fagnaði hann gróðanum á síðasta ári m.a. á þeim forsendum að hann renni nær allur til ríkisins, sem á nú orðið næstum allt bankakerfið.
Heldur kvað þarna við annan tón en hjá formanni Framsóknarflokksins í kosningabaráttunni 2013. Sá hafði miklar áhyggjur af því kröfuhafar gömlu bankanna væru að rýja fólk og fyrirtæki inn að skinni, ekki síst í gegnum rekstur nýju bankanna, sem skiluðu myljandi hagnaði, en norræna velferðarstjórn Jóhönnu og Steingríms hafði fært kröfuhöfum þá á silfurfati.
Hagnaður bankanna á síðasta ári varð til með nákvæmlega sama hætti og í tíð norrænu velferðarstjórnarinnar. Viðskiptavinirnir voru rúnir inn að skinni. Allt með samþykki og velþóknun hinna nýju stjórnarherra, sem allt í einu nú hafa ekki áhyggjur af óeðlilega miklum hagnaði bankanna. Öðru vísi mér áður brá.
Starfsmenn* bankanna hafa gengið fram að yfirgengilegri ósvífni gegn viðskiptavinum þeirra og beitt lögum, lögleysu og ofbeldi til að hirða eignir af einstaklingum og fyrirtækjum sem eiga jafnvel áratuga farsælan viðskiptaferil í forverum nýju bankanna. Eignir hafa verið hirtar á undirverði og eftirstöðvar innheimtar af hörku. Sýslumenn og fulltrúar þeirra hafa litið á sig sem sérstaka fulltrúa og samherja bankanna í þessum aðgerðum, sem hafa svipt þúsundir fjölskyldna húsnæði sínu og sogað til sín fasteignir og tæki smærri fyrirtækja og einyrkja og stöðvað rekstur þeirra, oft út af ólöglegum gengislánum sem bankarnir vissu frá 2001 að voru ólögleg..
Sýslumenn hafa borið fjölskyldur með ungabörn út á götu undir vökulum augum fulltrúa bankanna. Mér er kunnugt um fleiri en eitt og fleiri en tvö tilfelli þar sem fjölskyldufeður hafa fyrirfarið sér bugaðir yfir því að hafa misst þakið ofan af fjölskyldu sinni og geta ekki lengur séð henni farborða vegna þess að bankinn var búinn að hirða atvinnutækið. Skyldi ekkert óbragð koma í munn bankastarfsmanna eða kökkur í háls sýslumannsfulltrúa þegar ofbeldi þeirra leiðir til sjálfsvígs fjölskylduföður? Eða eru þessi sjálfsvíg bara á pari við það að bera út fjölskyldurnar með ungbörn, ekkert til að láta trufla sig?
Forsætisráðherra ætti kannski að rifja upp hvernig ofsagróði bankanna verður til áður en hann lýsir sérstakri gleði sinni yfir því að allir þessir peningar skuli renna í ríkissjóð. Þessir peningar eru blóðpeningar.
Að undanförnu hafa margir sett sig í samband við mig og borið sig illa undan vinnuaðferðum bankanna, og þá ekki síst Landsbankans, sem hefur verið í ríkiseigu allt frá hruni. Svo virðist sem enn á ný fari nauðungarsölum fjölgandi og enn virðast bankarnir sækja af fullum krafti með kröfur sem eru ýmist ólöglegar, siðlausar eða hvort tveggja. Ég hvet fólk til að hafa samband við mig og deila reynslu sinni af vinnubrögðum íslensku bankanna. Ég heiti fullum trúnaði og nafnleynd. Hægt er að senda mér tölvupóst í netfangið: [email protected].
*Hér er ekki átt við þann mikla fjölda starfsmanna bankanna sem sinna starfi sínu af trúmennsku gagnvart bæði bönkunum og viðskiptavinum þeirra heldur hina sem eru með blóð á sínum höndum. Þeir taki til sín sem eiga.