Hvað hefði stalín gert í sporum bjarna?

Sjálfstæðisflokkurinn er kominn niður í 22,9% fylgi samkvæmt nýjustu skoðanakönnun. Það lakasta á yfirstandandi kjörtímabili. Samtímis rísa Píratar upp sem forystuafl í stjórnmálum á Íslandi með 30,1%. Nú fer að sneyðast um nothæfar afsakanir hjá formanni Sjálfstæðisflokksins. Hvað mun hann segja? Líklaga að það sé ekkert að marka skoðanakannanir.


Þá rifjast upp það sem Stalín sálugi sagði: “Ekki er höfuðatriði hvernig kosið er heldur hvernig talið er upp úr kjörkössunum.”
Það var ólíkt þægilegra að vera í pólitík á tímum Stalíns en hjá aumingja Bjarna sem getur ekki leyst málin á eins auðveldan hátt og Stalín gerði.


“Staðan er vonlaus, en ekki alvarleg”, segja menn hér í Svíþjóð um svipaðar aðstæður og blasa nú við stjórnarflokkunum á Íslandi. Þeir njóta einungis stuðnings 33% kjósenda. Píratar einir eru með nærri því það sama og þeir báðir.


Trúlega verður engu breytt heima á Íslandi fyrr en að afstöðnum næstu kosningum. Þeir Sigmundur Davíð og Bjarni eru of svifaseinir og full hæggengir til að láta að sér kveða í stjórnmálum nútímans. Þeir eru báðir litlausir millibilsmenn í íslenskri pólitík. Fólk er þegar farið að bíða eftir nýrri leiðsögn.


Þeir eru báðir bóngóðir þegar fulltrúar sérhagsmuna leita til þeirra og frændræknir þegar skipa skal í mikilvæg embætti hins opinbera enda eru það dyggðir sem eru í hávegum hafðar hjá Framsókn og Sjálfstæðisflokknum. Þá hafa þeir gott auga fyrir því að ráðstafa heppilegum molum til vildarvina á vildarkjörum eins og dæmið um Borgun sýnir.


Því er engra stórtíðinda að vænta af þeim tveimur í pólitíkinni á næstunni. Báðir geta þeir treyst þingflokkum sínum næstu 2 árin en þeir eru naumast annað en hendur til atkvæðagreiðslu og áheyrnarfulltrúar sérhagsmuna fiskimanna og bænda á Alþingi, rétt eins og tíðkaðist á síðustu öld.


Báðir stjórnarflokkarnir hafa áður hildi háð um fylgi kjósenda en nú er fárra foringja völ í þeirra röðum. Flokkarnir hafa hvorki vopn né burði til harðrar stjórnmálabaráttu. Talsmenn flokkanna eru flestir hverjir óáheyrilegir og skaplitlir talsmenn ríkisstjórnarinnar og birtast þjóðinni sem áhugalausir og hugsjónasnauðir atvinnupólitíkusar.


Sigmundur Davíð og Bjarni fljóta á hæglætinu í stjórnmálum og komast upp með það á meðan tíðindalítið er á vígstöðvunum. Þeir munu fljótt færast í kaf þegar þeir þurfa að takast á við berserki á borð við Pírata eða boðað framboð Viðreisnar. Forysta sem stöðugt fjarlægist kjósendur og nýtur síminnkandi álits hjá þeim, mun ekki komast upp með það að birtast rétt fyrir kosningar, lofa þá enn á ný öllu fögru og segja: “Mannstu ekki eftir mér?”


Kjósendur munu þá svara: “Jú, þið eruð gæjarnir sem lofðuðu öllu fögru fyrir síðustu kosningar – og svikuð það. Ykkar tími er liðinn."