Nýjasta perlan á litríkri festi Hringbrautar er Ferðalagið, en þar er bókstaflega á ferðinni fjölbreyttur og upplýsandi sjóvarpsþáttur þar sem fjallað er um ferðalög í allri sinni mynd.
Í þessum nýstárlega frétta-, viðtals- og lífsstílsþætti er fjallað á fræðandi og skemmtilegan máta um eitt allra helsta áhugamál fólks, ferðalög jafnt heima og erlendis, en meðal efnis í fyrsta þættinum er frásögn séra Steinunnar Arnþrúðar Björnsdóttur af Jakobsveginum, kennarinn Jóhanna Gunnarsdóttir fræðir áhorfendur um uppáhaldsborgina sína Róm, gersemar Kex hostels á fimm ára afmæli þess eru skoðaðar í fylgd staðarhaldarans Böðvar Guðjónssonar, rætt er við Helgu Árnadóttur, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar um sóknarfæri og ógnanir greinarinnar og loks er farið yfir helstu fréttir úr ferðageiranum og sagt frá þeim viðburðum sem eru þar efst á baugi.
Það er sjónvarpsfólkið Linda Blöndal og Sigmundur Ernir sem leiða saman hesta sína í þessari fjörlegu þáttagerð, en þau eru bæði ágætlega sigld og mikið áhugafólk um ferðalög, auk þess að vera sjóuð vel í sjónvarpi og fjölmiðlavafstri um áratugaskeið.
Ferðalagið varir í klukkustund og hefst klukkan 21:00 í kvöld, en vert er að hvetja stjórnendur í ferðaþjónustunni og áhugafólk um ferðalög að gauka áhugaverðu efni að stjórnendum þáttarins, en netföng þeirra eru [email protected] og [email protected]. .