Það er nú einu sinni svo með snilldina að seint fær maður leið á henni. Og þess vegna er ekki úr vegi að njóta hennar reglulega. Þetta á við um ljóð og sögur, málverk og höggmyndir – og vissulega kvikmyndir sem sumar hverjar leita á áhorfandann löngu eftir að hann hefur séð hana fyrsta sinni. Hér skal nefndur dýrgripur, Píanó eftir Roman Polanski sem er sennilega fegursta myndin í flóru helfaramynda sem framleiddar hafa verið. Myndin er eitt þróttmikið ljóð þar sem fegurðin tekst á við ljótleikann í þvílíkri viðureign að allir komast við. Finndu myndina, eigðu hana, settu hana í viðtækið af og til þú situr þögull eftir fram á næsta dag.
Horfðu aftur á píanó
Fleiri fréttir
Nýjast